Prentað laugardaginn 25. maí kl. 22:06 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Hvernig líst þér á nýju ríkisstjórnina?

Mjög illa

Frekar illa

Hlutlaus

Frekar vel

Mjög vel

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Eldur niðri – æviminningar Haraldar komnar út á bók

6. apríl 2011

Bókin „Eldur Niðri“ er að koma út. Í henni lýsir Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur ævintýralegu lífshlaupi. Haraldur er einn þekktasti vísindamaður Íslands, en hann var nýlega sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands. Bókin er einstök heimild um uppeldi, sköpun og þróun jarðvísindamanns, sem hefur unnið brautryðjendastörf á rannsóknum á eldfjöllum víðs vegar um heiminn.  Í bókinni fjallar Haraldur á hispurslausan hátt um spennandi og oft lífshættuleg rannsóknaverkefni, um ástir, sigra, áföll og margt annað sem hefur gerst á nær fimmtíu ára ferli. Í frásögn sinni kemur hann til dyra eins og hann er klæddur, þegar hann greinir frá leiðöngrum sínum í Indónesíu, Ítalíu, Haítí, Vestur Indíum, Grikklandi, Afríku og víðar.

 

 

 

 

Brenndandi áhugi hans á leyndardómum jarðar kviknaði á æskustöðvunum á Snæfellsnesi og leiðir af sér ævilangt ferðalag um flest stórvirkustu eldfjöll heims, þar til hann lokar hringnum með stofnun Eldfjallasafns í Stykkishólmi. Eftir atburðaríkan feril við eldfjallarannsóknir um heim allan hefur Haraldur Sigurðsson frá mörgu að segja. Útgefandi bókarinnar er Vulkan ehf og Eldfjallasafnið í Stykkishólmi, Bókhlöðustíg 10.

 

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 22:00  S 0  4°C
Akrafjall 22:00  VSV 1  4°C
Hafnarfjall 22:00  S 6  4°C
Vatnaleið 22:00  SA 8  3°C
Hraunsmúli 22:00  S 7  5°C
Fróðárheiði 22:00  A 4  3°C
Brattabr. 22:00  SV 8  1°C
Holtav.h. 22:00  SV 6  1°C
Laxárdalsh. 22:00  ANA 5  1°C
Svínad. 22:00  NA 4  2°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent