Sveitarstjórn Borgarbyggðar ákvað á löngum kvöldfundi í gær að selja hlut sinn í Orkuveitu Reykjavíkur, enda einsýnt að ekki sé til handbært fé í sveitarsjóði til björgunar fyrirtækinu eins og aðrir eigendur hafa samþykkt. "Það hafa nokkrir aðilar komið að máli við sveitarstjórn undanfarna tvo daga og spurt hvort Borgarbyggð vilji selja hlut sinn í Orkuveitunni og losa sig um leið undan öllum skuldbindingum þar að lútandi. Um það hefur töluvert verið rætt í okkar röðum og höfum við nú ákveðið að bjóða þessa eignarhluti til sölu. Borgaryggð á 0,93% í veitunni og höfum við ákveðið að bjóða 93 jafna hluti til sölu í dag. Í þessu gildi að fyrstur kemur, fyrstur fær og hæsta boð verður tekið í hvern hlut. Lágmarksverð fyrir 0,01% hlut í fyrirtækinu verður 10.000 krónur, en menn geta boðið hærra og verður gengið að hæsta boði í hvern einstakan hlut. Eina skilyrðið er að viðkomandi bjóðendur séu búsettir í sveitarfélaginu," segir Páll S Brynjarsson sveitarstjóri í samtali við Skessuhorn.
Páll segir að nálgast megi umsóknareyðublöð fyrir hlutunum 93 í afgreiðslu Ráðhússins við Borgarbraut 14 í Borgarnesi milli klukkan 9:30 og 12 í dag. Jafnframt verður boðið upp á brennheitt kakó og romm, lagað úr hveravatni frá Deildartungu og rommi frá Víngerðinni í Borgarnesi.
|