Árlega greinast að meðaltali tíu til tólf börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Hræðsla og óvissa grípur þá um fjölskyldur þessara barna og hefur Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna reynst foreldrum ljós í því myrkri sem skellur á þegar barnið þeirra veikist. Skagamaðurinn Óskar Örn Guðbrandsson hefur verið framkvæmdastjóri félagsins frá árinu 2006 en dóttir hans Þuríður Arna hefur barist við heilaæxli frá því í október 2004. „Auðvitað óskar þess enginn að kynnast þessu félagi náið, en þegar maður þarf á því að halda er það mjög öflugt,” sagði Óskar Örn meðal annars þegar blaðamaður heimsótti hann á skrifstofu hans að Hlíðarsmára 14 í Kópavogi í síðustu viku.
Viðtalið í heild sinni má lesa í Skessuhorni vikunnar sem kom út í dag.
|