Fari svo að samningar takist ekki í deilu starfsmanna í loðnubræðslum við eigendur vinnslustöðvanna um landið og verkfall skelli á í kvöld, þar á meðal hjá bræðslumönnum á Akranesi, mun það einnig bitna á starfsfólki í frystihúsi HB Granda á Akranesi, en þar starfa um 35 manns. Að sögn Torfa Þorsteinssonar framleiðslustjóra hjá HB Granda er þessi staða sökum þess að fyrir löngu var búið að skipuleggja þorskveiðar skipa félagsins á þann veg að enginn kvóti yrði til ráðstöfunar á þeim þremur vikum sem áætluð frysting á loðnuhrognum stæði yfir, það er fram í miðjan mars.
|
Frystihúsið á Akranesi er sérbúið fyrir vinnslu á þorski og meðan frysting á loðnuhrognum hefur staðið, hefur allt stafsfólkið í frystihúsinu unnið við hana á vöktum. „Ég vil ekki trúa því að til verkfalls komi og þannig fari mikil verðmæti forgörðum bæði fyrir fyrirtækið og starfsfólkið. Það er þannig að ekki verður hrognafrysting erum við ekki með nein verkefni fyrir starfsfólk frystihússins hér á Akranesi og það verður þá að vera heima þar til þorskvinnsla byrjar að nýju í frystihúsinu um miðjan mars. Við höfum bara ekki kvóta og þetta skipulag miðaðast við loðnuvertíðina eins og undanfarin ár,“ segir Torfi Þorsteinsson hjá HB Granda. Í mjölverksmiðju HB Granda á Akranesi starfa tólf menn.
|