Dagurinn í dag, þriðjudagurinn 1. febrúar, er Dagur kvenfélagskonunnar. Hann er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands og var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar á síðasta ári. Var það gert til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna um árabil, enda löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu. Konur á Vesturlandi ætla að halda daginn hátíðlegan og koma m.a. saman í Geirabakaríi í Borgarnesi. Á vefslóð fyrir dag kvenfélagskonunnar segir að dagurinn sé að festa sig í sessi og er nú á fjölmörgum dagatölum og í dagbókum.
|
Kvenfélög og kvenfélagskonur eru hvattar til að muna eftir deginum og jafnvel gera sér dagamun hver og ein eða saman, en einnig að vera tilbúnar til að taka á móti hamingjuóskum og athygli þennan dag. Ekki er ætlast til þess að kvenfélagskonur standi sjálfar að hátíðahöldum þennan dag, segir á vefnum.
|