Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði var kölluð út í nótt vegna báts sem var að losna frá bryggju. Þá fór björgunarsveitin Ósk í Búðardal til aðstoðar ökumanni sem sem fest hafði bíl sinn á Bröttubrekku. Víðar um land voru björgunarsveitir að störfum í gærkvöldi og nótt. Á Selfossi og í Hveragerði voru sveitir kallaðar út vegna foks í nótt. Í Reykjavík voru björgunarsveitamenn kallaðir í viðbragðsstöðu í hús. Í gærkvöldi voru sveitir á Seyðisfirði, í Vestmannaeyjum, á Reyðarfirði að störfum þar sem þök höfðu losnað. Klæðning losnaði af gróðurhúsi á Egilsstöðum og þak á Húsavík, en björgunarsveit í Þingeyjarsýslu aðstoðaði við að ná í starfsmenn Orkuveitu sem sátu fastir í snjó við Laxamýri. Björgunarveitir í Reykjanesbæ og Sandgerði voru í viðbragðsstöðu í húsum sínum frá því í gærkvöldi að beiðni lögreglu.
|