Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í október sl. var ákveðið að fara í nokkrar skipulagsbreytingar á vegum sveitarfélagsins. Meðal annars var ákveðið að leggja starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa niður í þáverandi mynd. Indriða Jósafatssyni sem gegnt hafði því starfi var boðið nýtt starf forstöðumanns íþróttamannvirkja og Sigurþór Kristjánsson tók yfir umsjón æskulýðsmiðstöðva í sveitarfélaginu. Indriði ákvað hins vegar fyrir skömmu að þiggja ekki starf forstöðumanns íþróttamannvirkja og hefur starfið nú verið auglýst laust. Á fundi með starfsmönnum skömmu fyrir áramót þakkaði Páll S Brynjarsson Indriða vel unnin störf fyrir sveitarfélagið sl. tuttugu ár og óskaði honum heilla í framtíðinni.
|