Skessuhorn: |
|
Sendiherrar sóttu Reykholt heim |
|
21. júní 2010 |
 |
Gestir skoða Snorralaug undir leiðsögn séra Geirs. | Um hundrað manna hópur sendiherra og maka þeirra sótti Reykholt í Borgarfirði heim í blíðskaparveðri síðasta föstudag. Sendiherrarnir voru viðstaddir hátíðarhöld vegna þjóðhátíðardagsins í höfuðborginni en hefð er fyrir að í tengslum við heimsóknina sé farið með þá í dagsferð út úr borginni. Að þessu sinni lá leiðin á Þingvelli, ekið um Kaldadal og síðan langt stopp í Reykholti í boði Reykholtskirkju – Snorrastofu. Um leiðsögn sáu þeir sr. Geir Waage sóknarprestur og Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu. Farið var um húsakynni og önnur mannvirki í Reykholti og meðal annars skoðaður Laufeyjarlundur, garður sunnan við kirkjugarðinn og Sturlungareitinn sem öðlingskonan Laufey Þórmundardóttir fyrrum skólastjórafrú hóf ræktun í. Loks var snæddur kvöldverður hjá Fosshóteli Reykholti.
|
Að sögn Dagnýjar Emilsdóttur móttökustjóra Snorrastofu tókst heimsókn gestanna afar vel og voru þeir ánægðir að heimsókn lokinni. Dagný segir að mikil aukning sé í gestakomu í Reykholt það sem af er sumri og í mánuðunum maí og júní hafi verið sérlega gestkvæmt.
|
|
| |
 |
| |
|
|
|
|