Laxveiði mun áfram verða góð í sumar samkvæmt spá Guðna Guðbergssonar sérfræðings hjá Veiðimálastofnun. Þetta kom fram á ársfundi Veiðimálastofnunar sem fram fór í gær. Guðni sagði um 73.200 laxa hafa veiðst hér á landi í fyrrasumar, samanborið við 84.000 laxa sumarið 2008. Nemur minnkunin um 15% á milli ára en er þó 25% yfir meðalveiði frá árinu 1974. Enn varar Veiðimálastofnun við fækkun á stórlaxi og ef fram heldur sem horfir má búast við inngripum af hendi stjórnvalda. Nú eru komin tvö ár frá því að Veiðimálastofnun lagði til friðun á stórlaxi. “Ef fram heldur sem horfi verði stórlaxin horfinn með öllu innan tveggja áratuga. Stangaveiðimenn hafa reynt sitt besta og var 57% af stórlaxi sem veiddist á stöng sleppt aftur,” segir í frétt Stangveiðifélags Reykjavíkur.
Sjá nánar: www.svfr.is
|