Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 20:23 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Ráðherra gefur út reglugerðir um skötuselsveiðar

31. mars 2010

Jón Bjarnason, sjávarútvegs-ráðherra.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað tvær reglugerðir er snerta veiðar á skötusel. Annars vegar er reglugerð um sérstaka úthlutun aflaheimilda í skötusel en hins vegar reglugerð um veiðar á skötusel í net.  Reglugerðin um sérstaka úthlutun aflaheimilda í skötusel er samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða í lögum nr. 22/2010, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í henni kemur fram að úthlutað er sérstaklega 500 tonnum af skötusel á fiskveiðiárinu 2009/10.  Þessi úthlutun er gerð að höfðu samráði við Hafrannsóknastofnun.  “Heimilt er að úthluta á skip allt að 5 lestum í senn gegn greiðslu gjalds, enda hafi viðkomandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni.

 

 

 

Fiskistofa mun annast þessa úthlutun aflaheimilda sem skal fara fram eigi síðar en 3. maí 2010 á grundvelli umsókna sem borist hafa stofunni eigi síðar en 26. apríl 2010,” segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

 

Í reglugerðinni segir jafnframt að ef umsóknir um aflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru, skuli Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á aflaheimildum skötusels er 120 kr. hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun.  Framsal aflaheimilda sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt.

 

Um netaveiðarnar

Hins vegar er um að ræða reglugerð um veiðar á skötusel í net. Hún fjallar um ýmis atriði er varða umgengni á skötuselsveiðum.  Meðal annars eru í henni ákvæði um verndun svæða á Breiðafirði, hámarksstærð og gerð neta, merkingar neta, hámarksfjölda neta og hámarkstíma neta í sjó áður en þau eru dregin.  Þá eru í reglugerðinni ákvæði um að óheimilt sé að stunda veiðar með skötuselsnetum á tímabilinu 1. janúar - 30. apríl.  Síðan er ekki  heimilt á sama tíma að stunda netaveiðar á skötusel og netaveiðar á þorskfiski.

 

 

Sjá nánar HÉR

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:



SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Undirskrift 

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 20:10  SSV 1  12°C
Akrafjall 20:10  SV 1  12°C
Hafnarfjall 20:10  ANA 10  13°C
Vatnaleið 20:10  VNV 6  11°C
Hraunsmúli 20:10  NNA 10  13°C
Fróðárheiði 20:10  VNV 7  8°C
Brattabr. 20:10  NA 7  9°C
Holtav.h. 20:10  NNV 8  5°C
Laxárdalsh. 20:10  NNA 10  6°C
Svínad. 20:10  NNA 5  8°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent