Prentað fimmtudaginn 20. júní kl. 09:42 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Íbúar Snæfellsbæjar standa sig vel í flokkun á sorpi

24. júlí 2012

Góður árangur hefur náðst í flokkun á sorpi í Snæfellsbæ. Fyrstu endurvinnslu-tunnurnar í sveitarfélaginu voru settar upp í júní og sýna nýjar niðurstöður sorplosunar að íbúar hafi tekið þeim vel. Heildar sorpmagn í síðustu losun var 10.015 kg. Skipting magnsins var þannig að heimilissorp var 5.168 kg og endurvinnanlegt sorp 4.847 kg., eða 48% af heildar sorpmagni. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra Snæfellsbæjar þá eru niðurstöðurnar framar björtustu vonum. „Þessar góðu viðtökur gera það að verkum að mun minna magn verður urðað í framtíðinni í Fíflholtum sem aftur þýðir að við spörum töluverða fjármuni í urðunarkostnað svo ekki sé talað um hin umhverfislegu áhrif sem flokkunin hefur, því allt sem flokkað er verður endurnýtt á einhvern hátt,“ segir Kristinn.

 

 

 

 

 

Heilt yfir voru langflestir sem flokkuðu rétt. Þó bar örlítið á því að glerkrukkur og bleyjur rötuðu í endurvinnslutunnur, en þær eiga heima í hinni tunnunni. Á einungis tveimur stöðum í sveitarfélaginu af um 600 hirtu íbúar ekki um að flokka og var sorpið ekki tekið á þessum stöðum. Því er brýnt að íbúar Snæfellsbæjar hugi vel að flokkun sorps enda ávinningurinn augljós fyrir umhverfið og fjárhag sveitarfélagsins. 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 09:40  VSV 0  11°C
Akrafjall 09:30  ANA 7  11°C
Hafnarfjall 09:30  NNA 4  10°C
Vatnaleið 09:30  VNV 5  8°C
Hraunsmúli 09:30  NA 6  11°C
Fróðárheiði 09:30  VNV 7  7°C
Brattabr. 09:30  NNV 6  6°C
Holtav.h. 09:40  N 6  5°C
Laxárdalsh. 09:30  NNA 8  7°C
Svínad. 09:40  N 4  7°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
Guðmundur Páll Jónsson og Sveinn Kristinsson: „Það eru sólarlitlir dagar“
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent