Prentað miðvikudaginn 19. júní kl. 12:53 af www.skessuhorn.is
Yfirflokkur: Fyrirtæki - þjónustaYfirflokkur: FólkiðYfirflokkur: StjórnsýslaYfirflokkur: Skessuhorn
Spurning vikunnar

Ferð þú á bæjar- eða héraðshátíð í sumar?

Já, fleiri en eina

Já, eina

Veit það ekki

Nei

Leitarvélar
Skessuhorn
Leit.is
Símaskrá
Firmaskrá
Embla
Google
Athyglisverðar síður

 

   

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Skessuhorn:

Allar líkur á að hvalveiðar verði stundaðar í sumar

26. apríl 2012

Skessuhorn hefur traustar heimildir fyrir því að verulegar líkur séu nú á að hvalveiðar hefjist að nýju í sumar eftir að þær lágu niðri síðasta sumar vegna afleiðinga jarðskjálftanna miklu í Japan, en við það brugðust markaðir ytra. Kristján Loftsson forstjóri Hvals varðist þó allra frétta um málið síðasta mánudag og vildi ekki staðfesta neitt í samtali við Skessuhorn. Sagði sína reynslu að best væri að segja sem minnst varðandi hvalveiðimál í fjölmiðlum. Engu að síður hefur Skessuhorn traustar heimildir fyrir því að hvalveiðar hefjist í júní og að stefnt sé að þriggja mánaða vertíð. Þegar er Hvalur hf. farinn að setja sig í samband við sitt fólk um vinnu í sumar.

 

 

 

 

Kristján Loftsson var í Japan fyrir skömmu að ræða við kaupendur hvalafurða þar, en hvalveiðar Japana sjálfra hafa ekki gengið vel síðustu mánuðina. Meðal annars náðist aðeins fjórðungur kvótans við Suðurheimskautið en þar mátti veiða um 900 dýr.

 

Í Hvalstöðunni í Hvalfirði er allt klárt fyrir væntanlega vertíð í sumar eins og reyndar var fyrir síðasta sumar einnig, þegar ekkert varð af veiðum. Hvalveiðararnar og vinnslan hefur skapað hátt á annað hundrað störf þegar tekin eru saman störf á hvalveiðibátunum, í Hvalstöðinni og við vinnslu sem m.a. hefur farið fram á Akranesi. Fyrir marga hefur vertíðin þannig reynst uppgrip. Sem fyrr eru það Hvalur 8 og Hvalur 9 sem væntanlega verða sendir til veiða í júní en vertíðin hefur venjulega hafist um miðjan mánuðinn. Hvalur hefur heimild til að veiða 150-170 langreyðar en á vertíðunum í hitteðfyrra og árið þar áður var sá kvóti ekki fylltur.

 

 
 
Senda á Facebook


SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:



Hvað er þrír plús fjórir?

  

Skilaboð

Nafn sendanda:

 
Vefpóstur
Skessuhorn fréttasafn
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland
Kjalarnes 12:40  VNV 3  12°C
Akrafjall 12:40  VNV 3  13°C
Hafnarfjall 12:40  NA 2  14°C
Vatnaleið 12:40  NNV 6  10°C
Hraunsmúli 12:40  N 7  13°C
Fróðárheiði 12:40  VNV 6  8°C
Brattabr. 12:30  N 4  11°C
Holtav.h. 12:40  N 8  11°C
Laxárdalsh. 12:40  NNA 9  12°C
Svínad. 12:40  N 7  13°C
 
 
Samstarfsaðilar
Aðsendar greinar
 
Sveitarfélögin - fréttir
 
Fyrirtæki, stofnanir, þjónusta:
 
mbl.is - innlent